Nærandi jóga nidra námskeið/tímar

Nærandi jóga nidra námskeið/tímar

Samkennd Heilsusetur, Samkennd Heilsusetur, 110 Reykjavík Kort

þri. 08.09.2026 15:15

8 vikna nærandi jóga nidra námskeið með Ingu Rún. Kennt er einu sinni í viku, þriðjudaga frá kl. 15.15-16.00. Tímarnir eru í Samkennd Heilsusetri, Tunguhálsi 19, 110 Reykjavík.

Námskeiðið hentar vel byrjendum sem og lengra komnum. Engin fyrri reynsla af jóga er nauðsynleg. Námskeiðið er ekki trúarlegs eðlis. Ef stakur tími hentar þér betur en námskeið, hafðu samband í inga@inga.run

Námskeiðið getur gagnast þeim sem:

✨ Finna fyrir streitu, álagi, svefnvanda eða þreytu.

✨ Vilja endurnýja orkuna, bæta svefn, auka streituþol og seiglu í daglegu lífi.

✨ Vilja róa taugakerfið á áhrifaríkan hátt.

Þetta fá þátttakendur:

✨ Átta jóga nidra tíma með Ingu Rún Björnsdóttur.

✨ Rými til að rækta innra jafnvægi og endurnýja orkuna.

✨ Fræðslu um einföld og hagnýt verkfæri til að róa taugakerfið.

✨ Jóga nidra hljóðupptöku til eignar sem hægt er að nota að vild. Tilbúin til niðurhals um leið og gengið er frá greiðslu.

Jóga nidra er leidd meðvituð djúpslökun. Þú liggur á bakinu, með teppi yfir þér og púða undir höfði og fylgir rödd leiðbeinanda sem fer með þig í gegnum vöðvaspennuæfingar, líkamsskönnun, núvitundar- og öndunaræfingar.

Leiðbeinandi: Inga Rún Björnsdóttir starfar sem klínískur sálfræðingur og jógakennari. Hún er menntuð jógakennari frá Jógasetrinu hjá Auði Bjarnadóttur (200 stunda jógakennaranám í Hatha / Vinyasa og Amrit IAM Yoga) og hefur jafnframt lokið 20 stunda Yin Yoga kennaranámi. Einnig er hún með IAM Yoga Nidra advanced kennararéttindi frá Amrit Yoga Institute / Kamini Desai.

Inga Rún heldur reglulega jóga nidra námskeið þar sem hún fléttar sálfræðilegri þekkingu og bjargráðum saman við jógafræðin.

Flytjendur