Krummi á Þingeyri

Krummi á Þingeyri

Félagsheimilið Þingeyri, Aðalstræti 4, 470 Þingeyri Kort

mið. 12.08.2026 21:00

ISK 4990.00
Miðar / Skráning
ISK 4990.00
Miðar / Skráning

Krummi á Þingeyri

Söngvaskáldið Krummi Björgvinsson heldur tónleika í Félagsheimilinu á Þingeyri þriðjudaginn 12. ágúst – sama dag og stórbrotinn sólmyrkvi mun eiga sér stað. Það er því við hæfi að fagna þessum einstaka degi með tónlist, þar sem ljós og skuggar mætast og augnablikið verður ógleymanlegt.

Með Krumma á sviði verður gítarleikarinn Bjarni Sigurðarson.

Krummi hefur að undanförnu gefið út lög af væntanlegri plötu sinni sem kemur út í haust. Lögin hafa hlotið frábærar viðtökur, verið mikið spiluð í útvarpi og vakið verðskuldaða athygli bæði hér heima og erlendis.

Á tónleikunum mun Krummi flytja frumsamið efni af væntanlegri plötu ásamt eldri lögum og vel völdum ábreiðum. Kvöldið verður persónulegt, hlýlegt og notalegt þar sem farið verður um víðan völl í tónlistinni og sögunum á bak við lögin.

Sólmyrkvar minna okkur á að jafnvel þegar birtan hverfur um stund er hún aldrei langt undan. Þessi einstaki dagur og þessi einstöku tónleikar mynda saman augnablik sem gerist aðeins einu sinni.

Verið velkomin í Félagsheimilið á Þingeyri 12. Ágúst, kvöld þar sem tónlist og náttúran mætast á óvenjulegan hátt.


Flytjendur