Á Menningarnótt 2026 er Harpa 15 ára. Af því tilefni býður hönnunarteymið ÞYKJÓ börnum, fjölskyldum, vinum og vandamönnum að skapa saman litríkar afmæliskórónur sem hægt er að krýnast í tilefni dagsins. Smiðjan hentar öllum aldurshópum, er ókeypis og öll hjartanlega velkomin.
Norðurbryggju á jarðhæð Hörpu, 13 – 17.
ÞYKJÓ er hópur hönnuða með fjölbreyttan bakgrunn sem samnýta ólíka sérþekkingu í teymisvinnu sinni. Innan vébanda ÞYKJÓ eru arkitekt, leikja- og vöruhönnuður, fatahönnuður og klæðskeri og leikmynda- og búningahönnuður.
Hönnunarstarf ÞYKJÓ miðar að því að örva ímyndunarafl og sköpunarkraft barna í frjálsum leik. Í hönnunarvinnu höfum við til hliðsjónar hvernig hægt er að örva snertiskyn með efnisvali og formfræði, hreyfiþroska og jafnvægisskyn. ÞYKJÓ stendur einnig fyrir fjölbreyttum listsmiðjum, innsetningum og viðburðum í samstarfi við söfn og menningarstofnanir.
Hópurinn vinnur einnig náið með listafólki, vísindamönnum og fræðifólki á borð við uppeldisfræðinga, líffræðinga, listfræðinga og síðast en ekki síst - með börnum.
Flytjendur
-
ÞYKJÓ
Hönnuðir
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.