Korda Samfónía býður fjölskyldum og einstaklingum á öllum
aldri að taka þátt í söngstund fyrir alla aldurshópa á Menningarnótt.
Korda Samfónía er óhefðbundnasta hljómsveit landsins þar sem saman koma einstaklingar á aldrinum 20 til 70+ ára, á ólíkum stöðum í lífinu og með ólíkar sögur að baki. Tilgangurinn með hljómsveitinni er að fólk fái tækifæri til að vinna saman að sköpun nýrrar tónlistar. Korda Samfónía hefur undanfarin ár haldið árlega vortónleika sína í Silfurbergi í Hörpu. Stjórnandi Kordu er Sigrún Sævarsdóttir Griffiths.
Flytjendur
-
Menningarnótt
Menningarnótt er afmælishátíð Reykjavíkurborgar.
-
Korda Samfónía
Óvenjulegasta hljómsveit landsins, samsett úr starfandi tónlistarmönnum, nemendum úr Listaháskóla Íslands, sjálfmenntuðu tónlistarfólki og fólki í endurhæfingu.