Blúshátíð í Flóa | Harpa býður heim

Blúshátíð í Flóa | Harpa býður heim

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau. 22.08.2026 12:00

Blúsfélag Reykjavíkur gengst fyrir blúshátíð í Hörpu á Menningarnótt þar sem sveitirnar CC Fleet Blues Band, Refill og Ebenezer halda uppi þéttri stemningu og flytja tregablandinn, kraftmikinn og fjölbreyttan blús.
Blúsfélag Reykjavíkur var stofnað árið 2003 og hefur allar götur síðan staðið fyrir metnaðarfullu tónleikahaldi þar sem helstu merkisberar blústónlistar á Íslandi hafa stigið á stokk.
Tónleikarnir fara fram í Flóa, björtu og fallegu alrými á jarðhæð Hörpu þaðan sem njóta má útsýnis yfir fjöll og flóa. Léttar veitingar til sölu.
Kl. 12:00 – 12:30
CC Fleet Blues Band
Jón Ingiberg Jósteinsson, gítar og söngur
Gunnar Örn Sigurðsson, gítar
Jakob Viðar Guðmundsson, bassi
Ragnar Ólason, hljómborð
Jóhann Vilhjálmsson, trommur
Kl. 12:40 –13:10
Refill
Sigurður Sigurðsson, söngur. munnharpa
Sigurgeir Sigmundsson, gítar
Birgir Þórisson, hljómborð
Bjarni Sveinbjörnsson, bassi
Sigfús Óttarsson, trommur
13:20 – 13:50
Ebenezer
Sigurður Sigurðsson, söngur, munnharpa
Einar Rúnarsson, hljómborð
Ragnar Emilsson, gítar
Jón Kjartan Ingólfsson, bassi
Oddur F Sigurbjörnsson, trommur

Flytjendur