Brekkusöngur í beinni í Miðbæ Selfoss
Miðbær Selfoss, Engjavegur, 800 Selfoss Kort
sun. 02.08.2026 23:00
Það verður Þjóðhátíðarstemning í miðbænum á Selfossi á sunnudag um verslunarmannahelgina. Við endurtökum leikinn eins og síðustu ár þar sem stemningin á Brúartorgi verður algjörlega stórkostleg! 🎶🍻
Dagskrá Þjóðhátíðar í Vestmannaeyjum verður sýnd á Risaskjá frá kl. 20:00 og fram eftir kvöldi.
Sjálfur brekkusöngurinn hefst kl. 23:00.
Við hvetjum bæjarbúa og gesti til að fjölmenna í “tröppusöng” á Brúartorgi og taka undir með brekkunni í Eyjum.
Að sjálfsögðu verður opið á veitingastöðum og börum fram eftir kvöldi, markísur dregnar út og kveikt á hiturum.
Sjáumst í Tröppusöng í Miðbænum um versló! 🥳