Echolalia - Sólmyrkvahátíð Bjarkar & Smekkleysu

Echolalia - Sólmyrkvahátíð Bjarkar & Smekkleysu

Víðistaðatún, Víðistaðatún, 220 Hafnarfjörður Kort

mið. 12.08.2026 15:00

ISK 14990.00
Miðar / Skráning
ISK 14990.00
Miðar / Skráning

Allt er þegar þrennt er: Almyrkvi á sólu, sýning Bjarkar í Listasafni Íslands og 40 ára afmæli Smekkleysu !!

Í tilefni þessa er blásið til hátíðar á Víðistaðatúni, Hafnarfirði, miðvikudaginn 12.ágúst 2026.


Mánakvöld Bjarkar og Smekkleysu hafa löngum skapað sér sess í íslensku menningarlífi, hvar Björk hefur um árabil boðið þekktu tónlistarfólki að utan að leika fyrir dansi undir fullu tungli í blandi við íslensku grasrótina. Að þessum sinni verður dansað undir almyrkva á sólu.

Fram koma:

  • Björk (dj)
  • Arca (dj)
  • Ronja
  • Sideproject

+++ fleiri vinir tilkynntir er nær dregur !!


Viðburðurinn fer fram samhliða sýningu Bjarkar í Listasafni Íslands sem stendur yfir frá 30.maí - 20.september 2026. Í safninu veita þrjár innsetningar gestum einstakt tækifæri til að upplifa alltumlykjandi verk sem búa yfir kynngimagnaðri hljóðrænni, sjónrænni og tilfinningalegri dýpt. Tvö þeirra eru tregaljóð, samin og útsett af Björk í minningu móður hennar, og hið þriðja er nýtt verk af væntanlegri plötu Bjarkar. Ásamt sýningu Bjarkar verður í safninu sýning James Merry, Ummyndlingar, en tvíeikið hefur unnið náið saman í fjölda ára.


Frá Víðistaðatúni í Hafnarfirði munu gestir upplifa almyrkva á sólu í 1 mínútu og 4 sekúndur, en áhrifa sólmyrkvans mun gæta í tvær klukkustundir. Nánar á https://solmyrkvi2026.is/


Innifalið í miðaverði er aðgangur að sýningum Bjarkar og James í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg og sérhönnuð sólmyrkvagleraugu í anda viðburðarins.


Þá bjóðast ennfremur til sölu í takmörkuðu upplagi pakkar með vel völdum árituðum eintökum af nýjum útgáfum, afmælisútgáfum og endur-útgáfum Smekkleysu. Sjá nánari upplýsingar hér að ofan og við miðakaup.


Miðasala hefst föstudaginn 10.apríl kl. 10 á tix.is 


Flytjendur

  • ronja
    ronja

    hlaðvarp

  • Sideproject
    Sideproject

    Raftónlistar tríó frá Reykjavík, þekkt fyrir þunga taktsmíð.

  • Björk
    Björk

    Björk Guðmundsdóttir is a prolific singer, songwriter, producer, musician and actress who has been involved in music since the age of eleven. After becoming famous in Iceland for her renditions of songs by such artists as Tina Charles and The Beatles she joined a string of Icelandic rock bands: Tappi Tíkarrass, KUKL and The Sugarcubes, the last of which gained a popular following outside Iceland.

    Her solo work since 1991 spans the genres of rock, dance, electronic, jazz, ambient, trip-hop and classical.

    She is known for her avantgarde persona, her musical experimentation and sophistication, and her collaborations with many musicians, including 808 State, Thom Yorke, Tricky, Plaid, Matmos, Mark Bell, Hilmar Örn Hilmarsson (HÖH) of Psychic TV, and David Tibet of Current 93.


  • knackered
    knackered

    Tónlistarhópur sem spilar raftengda tónlist og lifandi sett.

  • 33EMYBW
    33EMYBW

    33EMYBW is a producer on the Shanghai label SVBKVLT, which is helping pull experimental club music in exciting new directions.

  • Kaitlyn Aurelia Smith
    Kaitlyn Aurelia Smith

    Modular Synthesis

    kaitlynaureliasmith.com

    https://ghostly.com/

  • LOSCABALLOS
    LOSCABALLOS

    Dj Melerito De Jeré & Dj Ranzio