Fornbílar í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum
Fjölskyldu- og Húsdýragarðurinn, Múlavegur 2, 104 Reykjavík Kort
lau. 25.07.2026 12:00
Félagar í Fornbílaklúbbi Íslands heimsækja Fjölskyldu- og húsdýragarðinn laugardaginn 25. júlí frá kl. 12 til 15. Þá gefst gestum garðsins tækifæri að skoða bílana og fræðast um starf klúbbsins.
Fornbílaklúbbur Íslands hefur það markmið að efla samheldni áhugamanna og eigenda gamalla bíla og gæta hagsmuna þeirra í hvívetna. Jafnframt vinnur Fornbílaklúbburinn að því að auka áhuga almennings á gömlum bílum og glæða skilning á varðveislu þeirra og minjagildi.
Allt frá stofnum Fornbílaklúbbsins árið 1977 hefur hann náð umtalsverðum árangri í hagsmunagæslu fornbílaeigenda. Til dæmis varðandi niðurfellingu bifreiðagjalda og stórlækkun aðflutnings- og tryggingariðgjalda, auk þess sem fornbílar mega nú bera eldri gerðir skráningarmerkja.
Þessi árangur er afrakstur ötuls starfs við að vekja skilning stjórnvalda á varðveislugildi gamalla bíla.
Fornbílaklúbburinn stuðlar að persónulegum kynnum eigenda fornbíla á Íslandi og hvetur félagsmenn til samvinnu um áhugamál sín, þannig að þeir geti miðlað af reynslu sinni og kunnáttu í meðferð og varðveislu gamalla bíla.
Flytjendur
-
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur
Menningar- og íþróttasvið Reykjavíkur leggur rækt við mannlífið í borginni á fjölbreyttan hátt.
-
Fornbílaklúbbur ÍslandsFornbílaklúbburinn stuðlar að persónulegum kynnum eigenda fornbíla á Íslandi og hvetur féla