Lokatónleikar sumarnámskeiðs Íslenska Suzukisambandsins

Lokatónleikar sumarnámskeiðs Íslenska Suzukisambandsins

Harpa | Flói, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort

sun. 09.08.2026 10:00

Íslenska Suzukisambandið býður í tónleikaveislu á lokadegi námskeiðisins.

Á tónleikunum koma fram um 175 nemendur á aldrinum 4–15 ára sem hafa tekið þátt í Sumarnámskeiði Íslenska Suzukisambandsins. Boðið verður upp á fimm styttri tónleika með um það bil 15 mínútna hléi á milli hverra tónleika.

Dagskrá
10:00 Píanónemendur
11:30 Þverflautu-, blokkflautu- og gítarnemendur
12:30 Selló- og víólunemendur
13:30 Kammertónleikar
14:15 Fiðlunemendur

Við bjóðum öll hjartanlega velkomin til að gleðjast með þessum glæsilega hópi ungra tónlistarnema.

Hlökkum til að sjá ykkur á tónleikunum!