Foreldramorgnar alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu
Amtsbókasafnið á Akureyri, Brekkugata 17, 600 Akureyri Kort
þri. 01.09.2026 10:00
Foreldramorgnar alla þriðjudaga á Amtsbókasafninu
Foreldramorgnar fyrir börn og foreldra
Foreldramorgnar eru alla þriðjudaga í barnadeildinni frá klukkan 10-12. Heitt er á könnunni og öll velkomin!
Markmið með foreldramorgnum er að gefa foreldrum tækifæri til þess að hitta foreldra í sömu stöðu, kynnast nýju fólki og fræðast með jafningjarfræðslu.
Einnig fá börnin tækifæri til þess að hitta önnur börn og leika saman.
Endilega komið í hópinn okkar https://www.facebook.com/groups/1743874325997142
* Við hvetjum ykkur til að mæta með umhverfisvænum hætti á viðburðinn. Frítt er í strætó og allir strætisvagnar stoppa í miðbænum í 300 metra fjarlægð frá safninu.