Hádegistónleikar í Eldborg

Hádegistónleikar í Eldborg

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið. 05.08.2026 12:00

Nokkrir af fremstu tónlistarmönnum Íslands koma fram á stuttum hádegistónleikum í Eldborg í sumar.

Áhorfendur koma sér fyrir á sjálfu sviðinu og hinn undurfallegi Eldborgarsalur er því bakgrunnur tónlistarflytjendanna. Efnisskráin samanstendur af íslenskri tónlist úr ýmsum áttum.

Fögur söngrödd ásamt glæsilegum Steinway flygli og Eldborg í allri sinni dýrð.

1. 2. & 3. ágúst - Ragnheiður Gröndal & Guðmundur Pétursson 
4. 5. 6. 7. 11. 12. 13. & 14. ágúst - Stefanía Svavarsdóttir  & Pálmi Sigurhjartarson
16. ágúst - Anna Gréta & Sigurður Flosason