Sparitónleikar - Ein með Öllu

Sparitónleikar - Ein með Öllu

Akureyrarvöllur, Glerárgata 24, 600 Akureyri Kort

sun. 02.08.2026 19:00

Egils Appelsín kynnir:

Sparitónleikar Einnar með Öllu 2026!

Viðburður sem ENGIN má missa af, enda hápunktur fjölskylduhátíðarinnar. Mælum með að grípa með teppi og tjaldstóla, góða skapið og leyfa ilmandi matarvögnum að sjá um kvöldmatinn. Það verður stuð á svæðinu frá kl 18 og hlökkum við til að taka á móti ykkur öllum.

Strætó keyrir aukaleiðir alla helgina. Leiðir 1-3-5-6 munu koma gestum í miðbæinn og auka 'Ein með Öllu' strætó leiðir koma öllum öruggum heim eftir Sparitónleikana, hvort heldur í íbúahverfi Akureyrar eða tjaldsvæðin.

Kynnar kvöldsins eru heiðurshjónin Svenni Þór og Regína Ósk.

Fram koma:

Aron Can

Bríet

Dynjandi

Herra Hnetusmjör

Laddi & Hljómsveit mannanna

Páll Óskar

Leynigestir?

Stútfull dagskrá með glæsilegu tónlistarfólki sem endar á glæsilegri flugeldasýningu frá Súlum, björgunarsveitinni á Akureyri.

Flytjendur