BLÚSHÁTÍÐ SUÐURLANDS
Sviðið, Sviðið, Selfoss | Sviðið Kort
fös. 25.09.2026 21:00
Blúshátíð Suðurlands 2026 í miðbæ Selfoss
Tónlist, stemning og ekta blús fyllir Sviðið á Selfossi dagana 25.- 26. september þegar Blúshátíð Suðurlands fer fram í fyrsta skipti.
Í samstarfi við Thule bjóðum við upp á tvö kvöld þar sem margir af fremstu blústónlistarmönnum landsins stíga á svið og skapa einstaka stemningu í hjarta Selfoss.
Á svið stíga:
• Kristjana Stefánsdóttir og hljómsveit
• Pálmi Gunnars og Blúskompaníið
• Blúsband Óskars Loga (Vintage Caravan)
• Beggi Smári & Bexband
• Rót
• Beebee and the Bluebirds
Athugið: Takmarkað miðaframboð.
Safnaðu vinahópnum, tryggðu þér miða í tæka tíð og upplifðu blúshelgi sem á eftir að festa sig í sessi sem einn af skemmtilegustu tónlistarviðburðum landsins.
Miðasala hefst fljótlega!
Flytjendur
-
Miðbær SelfossVelkomin á Selfoss!
🏡Endurbyggð söguleg íslensk hús
💚Í hjarta Suðurlands
🛍️20+ verslanir og veitingastaðir
-
RotFunk skotinn rythma blús í anda Allman brothers, Bill Withers, Dr. John, Sly and family Stone o.m.fl.
-
Blúshátíð SuðurlandsBlúshátíð Suðurlands verður haldin í fyrsta sinn í miðbæ Selfoss 25.–26. september 2026.
-
Beebee and the bluebirdsHljómsveitin Beebee and the Bluebirds var stofnuð af söngkonunni og gítarleikaranum Brynhildi Oddsdóttur árið 2010 og hafa þau verið mjög virk í íslensku tónlistarlífi síðustu misseri.
Þau hafa meðal annars spilað á Iceland Airwaves, Iceland Naturally, Reykjavik Guitarama og á tónlistarhátíðum bæði hérlendis og erlendis.
Brynhildur Oddsdóttir : söngur/rafmagnsgítar
Brynjar Páll Björnsson : bassi
Halldór Sveinsson : hljómborð
Ásmundur Jóhannsson : trommur