Jazz í Djúpinu // Moritz Christiansen Trio

Jazz í Djúpinu // Moritz Christiansen Trio

Hornið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort

fim. 06.08.2026 20:30

Í sumar heldur saxófónleikarinn Moritz Christiansen í tónleikaferðalag um sitt fyrrum heimaland, Ísland, ásamt tríói sínu frá Hamborg. Í upphafi ferðarinnar mun tríóið vinna að nýrri tónlist, sem þau munu síðan flytja á ýmsum stöðum víðs vegar um landið og taka upp í hljóðveri í lokin.

Tónlistina má flokka sem norrænan djass og býr hún yfir víðum hljómi þar sem áhersla er lögð á skýrar laglínur og það að segja sögur. Tónlistin þróast hægt og stöðugt, en geymir þó óvænta hnykki og sveiflur.

Fyrstu tónleikar ferðarinnar verða á Jazz í Djúpinu.

Auk Moritz skipa tríóið þeir Alex Petratos trommuleikari og Anton Deyß gítarleikari. Þeir þrír hafa spilað mikið saman sem kjarni kvintetts Moritz í Hamborg.

- -

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 sumarið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.

Flytjendur