Á rauðu ljósi í Vínstofu Friðheima
Vínstofa Friðheima, Skólabraut 6, 806 Reykholt Kort
fös 16. okt 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!-- UPPSELT --
Kæru vinir,
Við erum lengi búin að reyna að landa einum viðburði. Viðburði sem hefur slegið í gegn æ ofaní æ og vinsældirnar virðast engan endi ætla að taka. Við erum auðvitað að tala um leikritið/uppistandið Á rauðu ljósi með Kristínu Þóru Haraldsdóttur!
Kristín talar á bráðfyndinn hátt, en af einlægni og hispursleysi. um stress, streitu, seiglu, aumingjaskap og dugnað. Gamansýning um stressið sem fylgir því að vera manneskja.
Þann 16.október kl. 20:00 í Vínstofu Friðheima
Til að bóka miða sendið tölvupóst á fridheimar@fridheimar.is
Vinsamlegast tilgreinið:
Fjölda gesta
Klukkan hvað þið viljið mæta
Hvort þið hyggist vera í mat eða ekki
Miðaverð: 6.990 kr
ATH miðinn telst ekki staðfestur fyrr en greiðslustaðfesting hefur borist
Hlökkum til að hlæja með ykkur💫
Ps. Tilvalið tækifæri til að gera góða helgi úr þessu og bóka gistingu á Blue Hotel Fagrilundur, hjá nágrönnum okkar