Selárdalshátíð

Selárdalshátíð

Listasafn Samúels Jónssonar, Brautarholt, 465 Selárdalur Kort

fös 7. ágú 2026 00:00

Upptaktur að Selárdalshátíð

Föstudaginn 7. ágúst

Listasafni Samúels föstudaginn 7. ágúst kl 16

Kl. 16 verða opnaðar sýningar Húberts Nóa Jóhannessonar og Jónu Þorvaldsdóttur Sýning Listvinnslunnar mun auk þess vera kynnt en hún verður opin í safninu í allt sumar.

Safn Gísla á Uppsölum

Kl. 18 á föstudeginum 7. ágúst verður Safn Gísla Uppsölum formlega opnað með pompi og pragt.

Þröstur Leó Gunnarsson les úr á kvæðum og hugleiðingum Gísla. Krummi og Andri Söbbuson sjá um tónlist.

Boðið verður upp á drykki og viðbit að hætti Gísla.

 

Selárdalshátíð

Laugardaginn 8. ágúst

Kl. 12 Söguganga að Uppsölum. Umsjón Sólveig Ólafsdóttir.

Kl. 12-15

Sólmyrkvasmiðja. Umsjón Sirra Sigrún Sigurðardóttir.

Íslandsmeistaramót í flugdrekagerð. Umsjón Fjóla Eðvarðsdóttir.

Kl 15 Íslandsmeistaramót í flugdrekaflugi

Kl 16 Erindi í kirkjunni

Guðni Th. Jóhannesson: Sagan af Jóni Sigurðssyni í Verdölum. Hvernig og hvers vegna er hún sögð?

Ólafur J. Engilbertsson: Séra Páll Björnsson og galdramál í Selárdal

Sólveig Ólafsdóttir og Daníel Hansen: Gísli á Uppsölum og hollvinir hans

Kl. 18 Krásir á boðstólum

Kl 20 Tónleikar í kirkjunni

Krummi, Kraftgalli og Hermigervill

Kl 23 Fjörusöngur

 

Hátíðin er til styrktar söfnunum í Selárdal

Þau sem veita frjáls framlög fá aðgang að hátíðinni, veisluföngum og tjaldsvæði.

a. aðgangur á Selárdalshátíð – 10.000

b. aðgangur á Selárdalshátíð og krásir 20.000

c. aðgangur á Selárdalshátíð og tjaldstæði. 15.000

d. aðgangur á Selárdalshátíð með veisluföngum og tjaldstæði. 25.000

e. skammtímagjald á opnun sýninga 2.500

f. tjaldstæði: 5.000 á mann fyrir tvær nætur

Nánari upplýsingar

Miðar á TIX.is

https://samuelssafn.is/

https://www.instagram.com/listasafn_samuels/