,,Vont og gott" - lokatónleikar sunnudag kl. 14

,,Vont og gott" - lokatónleikar sunnudag kl. 14

Strandarkirkja í Selvogi, Selvogsvegur, 816 Ölfus Kort

sun. 26.07.2026 14:00

Lokatónleikar tónlistarhátíðarinnar Englar og menn verða í Strandarkirkju á sunnudaginn 26. júlí kl. 14. Yfirskrift tónleikanna er ,,Vont og gott" en þar koma fram Herdís Anna Jónasdóttir sópransöngkona, Matthías Stefánsson fiðluleikari og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari.

Þau munu flytja ljúfa og skemmtilega efnisskrá með íslenskum sönglögum. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Jórunni Viðar, Hjálmar H. Ragnarsson, Jóhann G. Jóhannsson, Tryggva M. Baldvinsson og Sigfús Halldórsson. Þar má heyra gamla klassík á borð við Svanasöng á heiði, en einnig mörg nýrri lög, m.a. þó nokkur upp úr ljóðabókum Þórarins Eldjárns, sem eru þekkt fyrir einstaka gamansemi. Þau munu færa okkur íslensku sönglögin með einstökum spuna sínum og fjölbreyttu útsetningum. Þá mun Matthías Stefánsson einnig frumflytja eigið lag á tónleikunum.

Miðasala er við innganginn og miðaverð er kr. 5000 en kr. 4500 fyrir 65+

Sópransöngkonan Herdís Anna Jónasdóttir hefur vakið verðskuldaða athygli frá því hún kom fyrst fram á sjónarsviðið en hún hefur á ferli sínum öðlast mikla reynslu í flutningi á margs konar tónlist, jafnt ljóðasöng sem óperu, kirkjutónlist og belcanto, söngleikjum og samtímatónlist. Hún hefur komið fram með með ýmsum sinfóníuhljómsveitum, á ýmsum tónlistarhátíðum og í útvarpi og sjónvarpi, bæði hér- og erlendis, og við fjölmörg óperuhús í Þýskalandi. Fyrsta sólóplata Herdísar Nýir vængir kom út 2021, hvar hún ásamt Bjarna Frímanni Bjarnasyni flytur íslensk sönglög. Vorið 2024 söng Herdís öll þrjú hlutverkin í frumflutningi óperunnar Óperan hundrað þúsund eftir Þórunni Grétu Sigurðardóttur og Kristínu Eiríksdóttur sem sýnd var við miklar vinsældir í Þjóðleikhúsinu.

Herdís Anna hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir söng sinn, m.a. var hún valin Söngkona ársins í Saarbrücken vorið 2016, hlaut Grímuna fyrir túlkun sína á Víólettu við Íslensku óperuna árið 2019 og Íslensku tónlistarverðlaunin fyrir söng ársins 2022.

Matthías Stefánsson fiðluleikari hefur verið starfandi tónlistarmaður síðan 2002 ásamt því að kenna á fiðlu og gítar og semja og útsetja tónlist. Matthías hefur spilað á yfir 150 geisladiskum fyrir alla helstu listamenn þjóðarinnar, m.a. Björk og SigurRós.

Hann hefur starfað með flestum þekktari tónlistarmönnum Íslands og verið starfandi meðlimur í ýmsum hljómsveitum, tekið þátt í fjölda leikrita, söngleikja og tónleikauppfærslum og sem tónlistarmaður hjá Þjóðleikhúsinu, Borgarleikhúsinu, Íslensku Óperunni, Íslenska dansflokknum, Sinfóníuhljómsveit Norðurlands og Sinfóníuhljómsveit Íslands.

Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari hefur komið fram á tónleikum víða sem einleikari, meðleikari og við flutning kammertónlistar auk þess að hafa hljóðritað fyrir útvarp og leikið inn á geisladiska. Hún hefur verið virk í tónleikahaldi á Íslandi og í uppeldisstarfi ungra söngvara, verið tónlistarstjóri uppfærslna síðustu ára hjá óperudeild Söngskólans í Reykjavík. Hún hefur einnig ferðast víða um land síðustu misseri og kynnt óperutónlist og hið íslenska sönglag fyrir grunnskólabörn í öllum landshlutum. Hún er einn helsti meðleikari óperusöngvara á Íslandi.

Hrönn er kennari við Söngskólann í Reykjavík, Söngskóla Sigurðar Demetz og við Menntaskóla í tónlist, MÍT.

Flytjendur