Að holdgera byggingu: Líkamar í Aalto byggingum
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
sun 4. okt 2026 00:00
Bústaðu viðburðinn!Sunnudaginn 4. október kl. 12:00 verður boðið upp á leiðsögn um sýninguna Að holdgera byggingu: Líkamar í Aalto byggingum með sýningarstjóra og listamönnum.
Sýningarstjórinn Sabina Westerholm tekur á móti gestum í anddyri Norræna hússins. Á meðan á leiðsögninni stendur mun hún eiga samtal við listamennina um vinnuferli þeirra og tengsl þeirra við Aalto-byggingarnar, sem urðu hluti af rannsóknum þeirra og listrænu starfi.
Leiðsögnin fer fram á ensku, en gestum er einnig velkomið að spyrja spurninga á sænsku, dönsku eða norsku.
Listamennirnir sem eiga verk á sýningunni, Elina Brotherus, Dafna Maimon og Ilona Sagar, verða viðstaddar leiðsögnina. Að henni lokinni gefst gestum tækifæri til að spyrja spurninga og eiga samtal við listamennina og sýningarstjórann.
Leiðsögnin veitir gestum tækifæri til að kynnast sýningunni nánar og heyra beint frá listamönnunum og sýningarstjóranum um hugmyndir, vinnuferli og aðferðir sem liggja að baki verkunum.
Nánari upplýsingar um sýninguna má nálgast hér.
Lestu um aðgengi í Norræna húsinu.
Forsíðumynd: Stilla úr verkinu Homebody eftir Dafna Maimon