Aðstandendur fólks með heilabilunarsjúkdóma - helstu áskoranir á mismunandi stigum sjúkdómanna
Lífsgæðasetur St. Jó, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður Kort
þri 13. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Vegna mikilla vinsælda endurtökum við þennan mikilvæga og áhugaverða fyrirlestur með Brynhildi, sálfræðingnum okkar sem var síðast haldinn haustið 2025 og þá var húsfyllir.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um helstu áskoranir aðstandenda á ólíkum stigum: frá greiningarferlinu, yfir dagþjálfunartímabilið og hvíldarinnlagnir, til flutnings á hjúkrunarheimili. Í þessu ferli eru eru ýmsar krefjandi vörður sem reyna á fjölskyldur og aðstandendur.
Brynhildur hefur í gegnum störf sín með stuðningshópum samtakanna og sálfræðiviðtölum öðlast mikla innsýn í það sem aðstandendur ganga í gegnum. Hún þekkir jafnframt vel til heilabilunar og mun deila nytsamlegum ráðum og benda á gagnleg úrræði.
Þessi fyrirlestur er einungis ætlaður aðstandendum og fagfólki.
🗣 FYRIRLESARI
Brynhildur Jónsdóttir sálfræðingur sem sér meðal annars um sálfræðiviðtöl og stuðningshópa fyrir aðstandendur hjá okkur í samtökunum.
Brynhildur hefur starfað á Minnismóttökunni á Landakoti við taugasálfræðilegar greiningar á fólki sem þangað leitaði vegna gruns um byrjandi heilabilun. Þá var hún einnig klínískur sálfræðingur á Áfalla- og sálfræðimiðstöðinni og sinnti greiningum og meðferð á sálrænum vanda hjá fullorðnum.
👥 FYRIR HVERJA
Einungis fyrir aðstandendur/fagfólk og aðra sem hafa áhuga á málefninu. Fyrirlesturinn er ekki ætlaður einstaklingum með heilabilun.
Engin skráning nauðsynleg.
⏰ HVENÆR
Þriðjudaginn 13. október kl. 17:00
🏠 HVAR
Fyrirlesturinn verður haldinn í húsnæði samtakanna í St. Jó í Hafnarfirði á 3. hæð. Athugið að það eru fleiri bílastæði við húsið Hringbrautarmegin.
📹 UPPTAKA
Fyrirlesturinn verður tekinn upp og settur á vefinn okkar daginn eftir.