Aðventukaffi Þingeyinga 2026!
Smárinn, Dalsmári 5, 201 Kópavogur Kort
sun 29. nóv 2026 03:00
Bústaðu viðburðinn!Ágætu Þingeyingar.
Aðventukaffi okkar í ár verður í sal á 2. hæð Smárans, íþróttahúss Breiðabliks, Dalsmára 5, Kópavogi (sama stað og í fyrra) sunnudaginn 29. nóvember og hefst kl. 15. Aðgengi er gott og næg bílastæði.
Aðgangseyrir er 3.000 kr. en frítt fyrir börn, 12 ára og yngri. Vinsamlegast hafið með seðla, við erum ekki með posa.
-Glæsilegar veitingar að hætti Ásdísar Hjálmtýsdóttur.
-Sigurbjörn Árni Arngrímsson, skólameistari Laugaskóla, flytur ávarp, en hann er jafnframt, eins og alþjóð veit, litríkur og fjörmikill íþróttalýsandi.
-Þráinn Árni Baldvinsson frá Torfunesi flytur tónlist og spilar undir fjöldasöng.
-Bragi Jónsson, bassasöngvari, ættaður frá Garði í Kelduhverfi, syngur nokkur lög við undirleik Þráins.
-Jólasveinninn lítur við og heilsar upp á ungu kynslóðina.
-Happdrætti.
Hittumst, gleðjumst og syngjum saman á fyrsta sunnudag í aðventu.
Stjórnin