Af minkum og mönnum

Af minkum og mönnum

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

fös 9. okt 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Samtök um dýravelferð, Humane World for Animals og Norræna húsið bjóða til viðburðar þar sem sjónum verður beint að loðdýrarækt á Íslandi; stöðu greinarinnar, dýravelferð, efnahagslegum þáttum og því hvað framtíðin kann að bera í skauti sér.

Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræðinga, stuttmyndir, tónlistaratriði með Ragnheiði Gröndal og pallborð þar sem fulltrúar stjórnmálaflokka ræða málefnið og svara spurningum.

Meðal erlendra gesta verða Mike Moser, sem starfaði um árabil innan alþjóðlega loðdýraiðnaðarins, og hagfræðingurinn Artūrs Kaņepājs, sem hefur unnið ítarlega samfélags- og efnahagsgreiningu á loðdýrarækt á Íslandi. Hann mun kynna helstu niðurstöður hennar á málþinginu.

Léttar veitingar og fordrykkir verða í boði. Frítt er inn og viðburðurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir.

Nánari dagskrá verður kynnt síðar.

Takið daginn frá! Við hlökkum til að sjá ykkur í Norræna húsinu 9. október.

Aðgengi: Gott aðgengi er í Elissu sal, lágur þröskuldur er inn í salinn. Lesið nánar um aðgengi á vefsíðu Norræna hússins.