Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa
Þyrlupallurinn við Landspítalann Fossvogi, , 108 Reykjavík Kort
sun 15. nóv 2026 13:45
Bústaðu viðburðinn!Sunnudaginn 15. nóvember er minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa. Haldin verður athöfn sem hefst kl. 14:00 við þyrlupallinn við Landspítalann í Fossvogi.
Þennan dag munu einingar Slysavarnafélagsins Landsbjargar og fleiri viðbragðsaðilar standa fyrir táknrænum athöfnum víða um land. Upplýsingar þar um verða færðar inn á vefsíðuna www.minningardagur.is
Öll eru velkomin.
Dagskrá:
13:45 – Þyrla Landhelgisgæslunnar lendir – viðbragðsaðilar koma sér fyrir.
14:00 – Setning – Ingilín Kristmannsdóttir, ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins.
14:05 – Halla Tómasdóttir forseti Íslands flytur ávarp.
14:10 – Forseti Íslands stýrir einnar mínútu þögn.
14:11 – Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra flytur ávarp.
14:16 – Ræðumaður dagsins fjallar um reynslu sína.
14:23 – Kór Menntaskólans við Hamrahlíð flytur lag dagsins, I Think of Angels eftir KK.
14:28 – Formlegri athöfn slitið – Ingilín Kristmannsdóttir ráðuneytisstjóri innviðaráðuneytisins. Boðið upp á kaffi, kakó og með því.