Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Alþjóðlegur minningardagur um fórnarlömb umferðarslysa

Siglufjörður, , Siglufjörður Kort

sun 15. nóv 2026 17:00

Bústaðu viðburðinn!

Slysavarnadeildin Vörn mun standa fyrir minningarathöfn um fórnarlömb umferðarslysa í samstarfi við viðbragðsaðila í Fjallabyggð.

Dagurinn er til að minnast þeirra sem látist hafa í umferðinni, leiða hugann að ábyrgð hvers og eins í umferðinni en ekki hvað síst að þakka þeim viðbragðsaðilum sem veita hjálp og björgun. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á unga vegfarendur.

Minningarathöfnin mun fara fram við kirkjutröppurnar fyrir neðan Siglufjarðarkirkju kl. 17:00 sunnudaginn 15. nóvember.

Hafdís Huld, bæjarstjóri, mun segja nokkur orð og verður þeirra sem látist hafa í umferðinni minnst með einnar mínútu þögn.

Tryggvi tekur nokkur falleg lög og boðið verður upp á heitt kakó og piparkökur.

Einkennislag dagsins er lag KK, When I Think of Angels, í flutningi hans og Ellenar sem samið var til minningar um systur þeirra sem lést í umferðarslysi í Bandaríkjunum árið 1992. Lagið verður flutt samtímis á öllum útvarpsstöðum kl. 14 á minningardaginn.