Arctic Challenges: Navigating a Changing Arctic

Arctic Challenges: Navigating a Changing Arctic

Háskóli Íslands, Sæmundargata 2, 102 Reykjavík Kort

mið 7. okt 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

🌐 Háskóli norðurslóða (UArctic) og Háskóli Íslands bjóða til opins málþings miðvikudaginn 7. október kl. 13:00–17:00 í Hátíðarsal Háskóla Íslands. Málþingið, sem er hliðarviðburður við hið árlega Hringborð norðurslóða (Arctic Circle Assembly), leiðir saman fræðimenn, sérfræðinga og fagfólk víða að.

Norðurslóðir standa nú frammi fyrir töluverðum áskorunum. Loftslagsbreytingar eru að endurmóta vistkerfi með áður óþekktum hraða, á sama tíma og aukin geopólitísk spenna ögrar rótgrónu samstarfi á svæðinu og efnahagslegir og stjórnskipulegir hagsmunir togast á. Þá vakna spurningar um það hvernig samfélög á norðurslóðum geta brugðist við aukinni aðsókn í auðlindir, nýrri tækni og meiri áhuga en jafnframt hugað að umhverfinu, náttúruvernd, og líffræðilegum fjölbreytileika svæðisins.

Á málþinginu árið 2026 verður meðal annars fjallað um eftirfarandi spurningar:

❓Hvernig eru geopólitísk samkeppni og öryggismál að móta samstarf og stjórnarhætti á norðurslóðum?

❓Hvernig er hægt að samræma vaxandi eftirspurn eftir auðlindum og nýrri tækni við markmið um náttúruvernd og umhverfisvernd?

❓Hvað má læra með því að tengja saman þekkingu og reynslu frá íshvolfssvæðum heimsins sem standa frammi fyrir hröðum umhverfisbreytingum?

❓Hvaða áhrif hafa loftslagsbreytingar og aukin umsvif mannsins á líffræðilega fjölbreytni á norðurslóðum, og hvar liggja enn tækifæri til samvinnu?

🔗 Nánari upplýsingar: https://ams.hi.is/is/projects/arctic-challenges-navigating-a-changing-arctic/

📝 Dagskráin verður birt þegar nær dregur, en opið er fyrir skráningar — skráðu þig hér: https://forms.cloud.microsoft/e/yHZXE4CxM6