Ársfundur Fjár- og hjarðhundadeildar
Hundaræktarfélag Íslands, Melabraut 17, 220 Hafnarfjörður Kort
mán 25. jan 2027 19:00
Bústaðu viðburðinn!Ársfundur Fjár- og hjarðhundadeildar verður haldinn í húsi Hundaræktunarfélags Íslands þann 25. janúar kl. 19
Laus eru þrjú sæti í stjórn, eitt til tveggja ára og tvö til eins árs.
Þeir sem hafa áhuga á að bjóða sig fram eru beðnir um að senda póst á smalahundar@gmail.com.
Tengiliði vantar á eftirfarandi tegundir:
Bouvier des Flandres
Belgian malinois
Tatra shepherd dog
Welsh corgi cardigan
Þeir sem vilja bjóða sig fram mega gjarnan senda póst á smalahundar@gmail.com
Einnig er hægt að bjóða sig fram bæði í stjórn og sem tengilið á ársfundinum sjálfum.
Stjórnin er með ýmislegt spennandi planað fyrir árið 2027 og stefnum á skemmtilegt ár fyrir deildina og því mikilvægt að fá öflugt fólk í lið með áframhaldandi stjórn.
Happdrættismiðar verða seldir á fundinum og verða dregnir út flottir vinningar.
Einn miði er á 1.000 kr
10 miðar á 5.000 kr
Heiðrun stigahæstu hunda deildarinnar verður að sjálfsögðu á sínum stað með vinningum frá Josera búðinni.