Stolt siglir fleyið mitt
Gamla höfnin, Gamla höfnin, Ægisgarður
fös. 07.08.2026 16:30
Stolt siglir fleyið mitt
Hinsegin dagar í samstarfi við Eldingu bjóða í litríka og skemmtilega hinsegin siglingu undir yfirskriftinni Stolt siglir fleyið mitt.
Við siglum stolt úr höfn og út á Faxaflóa í um klukkustundarlanga sjóferð á milli fallegra eyja þar sem borgin blasir við frá nýju og ógleymanlegu sjónarhorni. DJ Linda mætir með alla hýrustu poppsmellina og skapar réttu stemninguna til að vagga sér í takt við öldurnar og tónlistina!
Kvöldið hefst með fordrykk á Slippbarnum kl. 16:30, þar sem gestir geta spjallað saman og komið sér í gírinn áður en hópurinn heldur saman niður að Gömlu höfninni. Skipið leggur svo úr höfn stundvíslega kl. 18:00.
Ævintýri á sjó
Hvalaskoðunarferðir Eldingar eru á áætlun allt að sex sinnum á dag á sumrin og tekur hver ferð um þrjár klukkustundir. Einnig eru áætlunarferðir í sjóstöng og lundaskoðun daglega ásamt ferjusiglingum til Viðeyjar. Frítt er fyrir farþega Eldingar í Hvalasetrið þar sem gestir geta fræðst um lífríki hafsins í máli og myndum.
Flytjendur
-
Hinsegin dagar - Reykjavik PrideReykjavik Pride
-
DJ LindaDJ with popular pop hits -
EldingHost of the Easter Egg Hunt