Beili Liu: Vatnsins streymi – listamannsspjall
Hafnarborg, Strandgata 34, 220 Hafnarfjörður Kort
fös 13. nóv 2026 12:00
Bústaðu viðburðinn!Föstudaginn 13. nóvember kl. 12 mun listakonan Beili Liu leiða gesti um sýningu sína Vatnsins streymi í Hafnarborg ásamt Hólmari Hólm, sýningarstjóra. Þá mun hún segja frá verkunum á sýningunni, vinnuferli sínu og þeim rannsóknum sem liggja að baki. Spjallið fer fram á ensku.
Vatnið gengur líkt og rauður þráður um verk Beili Liu, þar sem hún beinir sjónum sínum að ám og úthöfum, fjarlægum ströndum og þeim efniviði sem berst þar á milli. Á sýningunni getur að líta verk sem byggjast á yfirstandandi listrannsóknum Liu á norðurslóðum og nærliggjandi svæðum, þar sem hún kannar hvernig við erum samofin náttúrunni og hversu viðkvæmt samband okkar við hana er.
Beili Liu er bandarísk listakona, fædd í Kína og búsett í Austin, Texas, þar sem hún er prófessor við College of Fine Arts við University of Texas at Austin. Verk hennar hafa verið sýnd víða um heim og hefur hún til að mynda haldið einkasýningar í Bandaríkjunum, Kína, Þýskalandi og Noregi. Hún hefur hlotið fjölda styrkja og viðurkenninga, þar á meðal Andrew Carnegie Fellowship (2022-2024), Pollock Prize for Creativity (2022), Fulbright Distinguished Arctic Chair Award (2021-2022) og styrk frá Joan Mitchell Foundation (2016).
Liu dvaldi sem gestalistamaður í Hafnarborg frá desember 2023 til janúar 2024 í tengslum við listrannsóknir sínar á norðurslóðum. Hún snýr nú aftur til Hafnarborgar með sýninguna Vatnsins streymi en nú eru 40 ár liðin frá því að gestavinnustofa safnsins, sú elsta sinnar tegundar á Íslandi, hóf starfsemi sína. Í fjóra áratugi hafa listamenn víðs vegar að úr heiminum dvalið í gestavinnustofu Hafnarborgar og með því hafa myndast margvísleg tengsl milli Íslands og ólíkra landa og menningarheima.
Aðgangur ókeypis – verið öll velkomin.