Belonging?
Þjóðleikhúsið | Kjallarinn, Hverfisgata 19, 101 Reykjavík Kort
lau 6. mar 2027 21:00
Síðustu þrjú ár hefur Þjóðleikhúsið boðið listafólki með ólíkan bakgrunn, úr ólíkum menningarkimum að láta ljós sitt skína í Kjallaranum. Listahópurinn R.E.C. Arts Reykjavík hefur stýrt viðburðunum fyrir hönd Þjóðleikhússins - en nú tekur nýr listrænn stjórnandi við með dagskrá sem kallast Belonging?
Að vera innflytjandi á Íslandi er fyndnara en þú heldur
Eftir vel heppnaða frumraun í Kjallaranum á síðasta leikári í samstarfi við R.E.C Arts Reykjavík mun viðburðaröðin Belonging? bjóða upp á blöndu af uppistandi og öðrum atriðum frá fjölbreyttum hópi flytjenda fjórum sinnum yfir veturinn. Fyrri sýningar Belonging? hafa selst upp í Tjarnarbíói og Salnum í Kópavogi og getið sér gott orð meðal áhorfenda og gagnrýnenda. Uppistandarar Belonging? eiga það sameiginlegt að vera innflytjendur á Íslandi (ásamt nokkrum íslenskum leynigestum) sem flytja uppistand sitt á ensku, þar sem þeir deila með okkur sprenghlægilegum sögum úr sínum reynsluheimi og velta upp spurningum um hvort þau geti nokkurn tíma tilheyrt samfélaginu á þessari eyju.
Listrænn stjórnandi: Daniel Byung-chan Roh