BritRock klifurkvikmyndasýning
Bíó Paradís, Hverfisgata 54, 101 Reykjavík Kort
fim 10. des 2026 19:00
Bústaðu viðburðinn!BritRock kvikmyndahátíðin kemur til Reykjavíkur í eitt kvöld! Komdu í Bíó Paradís 10. desember og sjáðu fjórar sérvaldar klifur- og ævintýramyndir frá Bretlandi.
Brattir klettar, djörf klifur, litríkar persónur og stórkostlegt landslag. Sannar sögur af fólki sem ýtir sér að ystu mörkum á berginu og í fjöllunum. Hvort sem þú klifrar sjálf/ur eða hefur einfaldlega gaman af góðum ævintýrasögum, þá er þetta kvöld innblásturs á hvíta tjaldinu.
4 klifurmyndir:
Inside the Mountain:
Þú ert kominn tvo metra inn í 140 metra klifurleið og ert nú þegar gegnblautur. Vatn streymir um sprungur og gjár í kalksteininum, rennur niður hendurnar á þér og inn um ermarnar. Regnfatnaður dugar skammt hér; ekkert getur haldið þér þurrum.
Það er nánast algjört myrkur. Eina birtan, fyrir utan ljósgeislann frá höfuðljósinu þínu, kemur frá mjórri rák af dagsbirtu langt fyrir ofan – og aðeins nokkrum metrum frá þér fellur hæsti samfelldi foss Bretlands niður í djúpið. Dynurinn er stöðugur. Vindurinn blæs. Þú ert nú þegar orðinn kaldur.
Þetta er ein villtasta klifurleið Bretlands, en hún er hvorki í sjávarbjargi né á fjalli. Hún er inni í fjalli.
Myndin *Inside the Mountain* fylgir ólympíufaranum Molly Thompson-Smith og klifurgoðsögninni Steve McClure þegar þau takast á við þessa ótrúlegu leið, djúpt inni í dýpsta opna hellisskakti Bretlands.
Kvikmynd eftir Jack Homan (Higher Ground Films)
„INSIDE THE MOUNTAIN“ – 30 mínútur
Beyond:
BEYOND fjallar um fólk sem lifir með krabbameini eða hefur sigrast á því, og hvernig það finnur styrk, tengingu og nýja möguleika í gegnum klifur. Myndin gerist bæði í klifursal og úti í náttúrunni, á klettum fjallanna, og segir áhrifamikla sögu um það hvernig bataferli breytist í ævintýri.
Kvikmynd eftir Ben Menashe
„BEYOND“ 11 mín.
Dream Rime:
Hallaðu þér aftur og dáðu þig að þessu kvikmyndaafreki, þar sem við sjáum hina frægu Cerro Torre-tinda í Patagóníu eins og þeir hafa aldrei sést áður. Myndin er tekin af drónasérfræðingnum Ty Lekki og framleidd af Alastair Lee, sem hlotið hefur fjölda verðlauna. Hér fer saman hljóð og mynd á stórkostlegan hátt og markað er nýtt skeið í gerð fjallakvikmynda.
Hópur fjallamanna – þrír frá Argentínu og einn frá Þýskalandi – reynir sig við leiðina yfir Punta Hernon og Torre Egger. Á leiðinni mæta þeir sérstökum ísmyndunum, svokölluðum „ís-sveppum“ og hrími, sem finnast einungis á þessum einstaka stað í heiminum. Í fyrsta sinn er klifur af þessu tagi kvikmyndað með þessum hætti og útkoman er hreint út sagt ótrúleg. Þótt flokka mætti myndina sem „rólegt sjónvarpsefni“ (e. *slow TV*), máttu eiga von á því að hjartað taki kipp og ímyndunaraflið fari á flug. Þetta er einstakt verk með stórkostlegri kvikmyndatöku, fallegri klippingu og vandaðri tónlist. Þessi mynd á svo sannarlega heima á hvíta tjaldinu!
„DREAMRIME“ – 15 mínútur
Journey to the End of Ego:
Sviðið er hið nánast goðsagnakennda landslag við Ben Loyal – eitt af afskekktustu fjöllum Skotlands sem rís tignarlega upp yfir Norður-Íshafinu. Kletturinn er einn glæsilegasti samfelldi veggur óklifraðs bergs sem finna má í landinu. Klifrari sögunnar er hinn umdeildi og öflugi Franco Cookson – maður sem vekur gjarnan umræður og lætur mikið á sér bera. Hér er sögð stórbrotin saga af hættulegustu hefðbundnu klifurleið Bretlands, og þeim 105 dögum sem fóru í að láta draum eins manns rætast: leiðina „Nothing is Lost“ (E12 7a).
Fyrir þremur árum breyttist líf Francos þegar tilviljunin leiddi hann að hinum heillandi klettum Ben Loyal. Tilgangur lífs hans varð skyndilega ljós: hann varð að finna leið upp þennan slétta granítvegg. Franco sagði upp vinnunni og helgaði sig verkefninu algjörlega; hann dvaldi langdvölum einn síns liðs á hásléttu fjallsins. Í ferli sem jaðraði við þráhyggju tókst honum, hægt en örugglega, að finna mögulega leið upp vegginn. Hreyfingarnar eru oft gríðarlega krefjandi, krefjast mikils jafnvægis og eru afar varhugaverðar – með köflum þar sem alls ekki má falla, ofan við hættulegt undirlag og með ótraustum tryggingum. Þetta er saga og klifurleið sem á sér enga hliðstæðu í Bretlandi.
„JOURNEY TO THE END OF THE EGO“ (Ferðalag til enda egósins) – 50 mínútur