Komdu á bókasafnið og búðu til sykurkúpugrímu fyrir dag hinna dauðu!
„Día de los muertos“ eða „dagur hinna dauðu“ er upprunalega mexíkóskur frídagur og er honum fagnað um alla Mexíkó sem og annars staðar í hinum spænskumælandi heimi. Á deginum safnast fjölskylda og vinir saman til að minnast þeirra sem eru látnir.
Við ætlum að bjóða upp á grímugerð á Bókasafninu þar sem hægt er að búa til sína eigin grímu í anda hefðarinnar um “sykurkúpur” eða “sugar skulls” sem gjarnan eru búnar til í sambandi við þessa mexíkósku hátíð.
Að þessu sinni verður föndurstundin án aðstoðar starfsmanns en góðar leiðbeiningar, allt efni og skemmtilegar hugmyndir á staðnum.
Öll velkomin.
Nánari upplýsingar veitir:
Agnes Jónsdóttir, sérfræðingur
agnes.jonsdottir@reykjavik.is | 411 6250
Búum til sykurkúpugrímur
Borgarbókasafnið | Menningarhús Árbæ, Hraunbær 119, 110 Reykjavík Kort
sun 25. okt 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!