Richard Andersson NOR ásamt Anne Efternøler - Múlinn Jazzklúbbur

Richard Andersson NOR ásamt Anne Efternøler - Múlinn Jazzklúbbur

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið. 22.07.2026 20:00

ISK 5200.00
Miðar / Skráning
ISK 5200.00
Miðar / Skráning

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með sumardagskrá sína með spennandi tónleikatvennu þriðjudaginn 21. júlí og miðvikudaginn 22. júlí kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram Richard Andersson og NOR tríóið ásamt Anne Efternøler.

Með tærum og næmum tón sem mótast af norrænni angurværð og vel útfærðum eldgosakrafti hefur danska/íslenska tríóið NOR, undir stjórn verðlaunabassaleikarans Richard Andersson, heillað áheyrendur víðs vegar um Skandinavíu á meira en 100 tónleikum undanfarinn áratug. Nú hefur tríóið hafið samstarf við trompetleikarann Anne Efternøler, tónlistarkonu sem býr yfir einstaklega persónulegum tón og ljóðrænni frásagnargáfu sem opnar nýjar leiðir inn í tónlistarheim NOR. Auk Richard skipa tríóið tveir af fremstu jazztónlistarmönnum Íslands, saxófónleikarinn Óskar og trommuleikarinn Matthías MD Hemstock.

Tónlist NOR byggir á tónsmíðum Richard og Óskars. Fyrsta plata sveitarinnar Nor, kom út árið 2017 og var fylgt eftir með The Six of Us árið 2018. Báðar plöturnar hlutu afar góðar viðtökur jafnt innanlands sem erlendis. Jazzmiðillinn Salt Peanuts lýsti sveitinni sem „þéttum og samstilltum hópi með sterkt og áhrifamikið samspil, líkt og norræn fjölskylda – prúð, hljóðlát og hlý.“

Árið 2023 kom út platan Undo, sem var tilnefnd til Danish Music Awards Jazz, með framlagi gítarleikarans Hilmars Jenssonar. Með komu Anne Efternøler bætist ný vídd við hljóðheim sveitarinnar og úr verður einstök tónleikaupplifun þar sem nánd, tjáning og samspil eru í forgrunni. Um Efternøler skrifaði Salt Peanuts að hún væri „trompetleikari með tjáningu sem fer beint til hjartans.“

Richard Andersson NOR feat. Anne Efternøler

Anne Efternøler, trompet

Óskar Guðjónsson, saxófón

Richard Andersson, bass

Matthías MD Hemstock, trommur

Spennandi sumardagskrá Múlans heldur síðan áfram á þriðjudags- og miðvikudagskvöldum fram í miðjan ágúst. Múlinn er á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans.

Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu.

Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna.

Tónleikar Múlans fara fram í sumar á þriðjudags- og á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu

Flytjendur