Deep Red & Pub Quiz // Ítalskir kvikmyndadagar

Deep Red & Pub Quiz // Ítalskir kvikmyndadagar

Bíó Paradís Salur 2, Hverfisgata 52, 101 Reykjavík Kort

lau 14. nóv 2026 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Ítalskir kvikmyndadagar í samstarfi við Bíó Paradís og Breakout Reykjavík kynna:

Deep Red (Profondo rosso) frá árinu 1975, í leikstjórn meistara gæsahúðarinnar, Dario Argento, er almennt talin ein áhrifamesta og besta myndin í giallo stefnu ítalskra leyndardóms- og hryllingsmynda.

Við fylgjumst með píanóleikaranum Marcus Daly (David Hemmings) sem verður vitni að hrottalegu morði. Hann ákveður að rannsaka málið sjálfur ásamt djarfri blaðakonu en flækist fljótt í banvænan vef dularfulls morðingja í svörtum leðurhönskum...

Myndin hefst klukkan 23:00 en á undan henni, kl. 21:00, mun hryllings séníið Nikkita Hamar Patterson standa fyrir barsvari um allt sem viðkemur hryllingi, hin fullkomna dægrastytting á myrku haustkvöldi. Veglegir vinningar eru í boði fyrir sigurliðin og þeir sem mæta snemma fá veigar frá Mekka. 2-4 mega vera saman í liði.

Við hvetjum gesti til sem vilja koma sér í hryllingsstuð til þess að byrja kvöldið í Saw - Escape Room hjá Breakout Reykjavík (Hverfisgata 94) en allir sem eiga miða á kvikmynd sem sýnd er á Ítölskum kvikmyndadögum fá 15% afslátt á þessa einstöku upplifun.

Sjáumst logandi hrædd laugardaginn 14. nóvember 🔪🩸