Ég er komin heim - Opin æfing
Dansverkstæðið, Hjarðarhagi 47, 101 Reykjavík Kort
mið 30. sep 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Við í sviðslistahópnum Atvinnumenn erum að setja upp nýju sýninguna "Ég er kominn heim" sem verður sýnd 9. október kl 17:00 á sportbarnum Ölver, sem partur af State of the Art Festival. Sýningin snýst um að fanga þá stemningu sem gerist á leikdögum meðal áhorfenda og aðdáenda fótboltans í gegnum dans, leik og söng. Síðasta mánuðinn höfum við fengið að nýta okkur stúdíó Dansverkstæðisins til að æfa og skapa og viljum við því bjóða ykkur á opna æfingu þann 30. september kl 20:00 á Dansverkstæðinu. Hlökkum til að sjá ykkur!