eivør
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
fös 23. okt 2026 19:00
Töfrandi Eldborg með Eivöru
Þann 23. október tekur Eivör yfir Eldborg með sínum eintaka hætti og splunkunýtt efni í farteskinu. Framundan er kvöld fullt af krafti, dulúð og tónlist sem lætur engan ósnortinn. Evróputúr Eivarar hefst í Færeyjum og á Íslandi. Þetta verður kvöld sem þú vilt ekki missa af.
Platan Tungl, kemur út 16. október og fylgir eftir plötunni ENN, sem kom út árið 2024.
Á Tungl kafar Eivör enn dýpra í dimman og draumkenndan hljóðheim. Platan fjallar um síbreytilegar hringrásir lífsins og ferðast á milli viðkvæmni og sorgar, ástar og missis, styrks og umbreytinga. Fjögur lög hafa þegar verið gefin út; Healer, Drekafljóð, Verjugarðar og Spøkilsir.
Nýtt myndband var nýlega frumsýnt við lagið Drekafljóð en það var tekið upp á íslandi og er í leikstjórn Krassasig.
Horfðu á myndbandið hér
Ekki missa af Eivöru í Eldborg þegar hún hefur Evróputúrinn með nýja tónlist úr Tungl í farteskinu!