Frá nýja heiminum - Sinfóníuhljómsveit Íslands
Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
fim 14. jan 2027 19:30
Isabelle Faust hefur verið einn eftirsóttasti fiðluleikari heims um árabil. Hún er Íslendingum að góðu kunn eftir að hafa verið staðarlistamaður hjá Sinfóníuhljómsveit Íslands á árunum 2010-11 og heimsótt okkur nokkrum sinnum eftir það. Á þessum tónleikum leikur hún Oracle, glænýjan fiðlukonsert eftir Philippe Manoury, eitt fremsta núlifandi tónskáld Frakka. Faust frumflutti konsertinn nýlega með SWR-sinfóníuhljómsveitinni í Stuttgart og nú fá íslenskir áheyrendur að heyra hann í fyrsta sinn. Þá verður frumflutt tónverkið Djúpið – Sálumessa eftir Hjálmar H. Ragnarsson, en hann lést í mars 2026.
Hljómsveitarstjóri
Olari Elts0
Einleikari
Isabelle Faust0
Efnisskrá
Hjálmar H. Ragnarsson Djúpið – Sálumessa, frumflutningur
Philippe Manoury Oracle, fiðlukonsert
Antonín Dvořák Sinfónía nr. 9 í E-moll, „Frá nýja heiminum“