GH Gypsy tríó ásamt Paulus Schäfer á Múlanum

GH Gypsy tríó ásamt Paulus Schäfer á Múlanum

Harpa, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið 30. sep 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 30. september kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram gypsy jazz tríó gítarleikarans Gunnars Hilmarssonar sem hefur verið leiðandi í þeirri stefnu hérlendis undanfarin ár. Að þessu sinni fær tríóið til sín frábæran gest, Paulus Schäfer sem er einn fremsti gypsy jazz gítarleikari í heimum í dag. Hann hefur spilað með mörgum frábærum listamönnum á borð við Stochelo Rosenberg, Bireli Lagrene, Peter Beets, Jan Akkerman, Antoine Boyer og Martin Taylor. Sérstakur gerstur á þessum tónleikum verður fiðluleikarinn góðkunni Dan Cassidy. Paulus Schäfer, gítar Gunnar Hilmarsson, gítar Jóhann Guðmundsson, gítar Leifur Gunnarsson, bassi Dan Cassidy, fiðla

Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í mðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu