HÁDEGISTÓNLEIKAR: Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti og Jón Arnar Einarsson básúnuleikari

HÁDEGISTÓNLEIKAR: Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti og Jón Arnar Einarsson básúnuleikari

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

lau 3. okt 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

HÁDEGISTÓNLEIKAR: Lára Bryndís Eggertsdóttir organisti og

Jón Arnar Einarsson básúnuleikari

Laugardagur 3. október kl. 12

Frábær tónlistarupplifun í hádeginu í Hallgrímskirkju með Jóni Arnari Einarssyni leiðandi básúnuleikara Sinfóníuhljomsveitar Íslands og Láru Bryndísi Eggertsdóttirur organista Grafarvogskirkju. Lára og Jóna Arnar leiða saman krafta og blæbrigði orgels og básúnu á einstökum tónleikum í Hallgrímskirkju. Meðal verka á efnisskránni eru verk eftir Huga Guðmundsson, Gustav Holst og Þórð Hallgrímsson.

Jón Arnar Einarsson er einn af fremstu básúnuleikurum landsins. Hann gegnir nú stöðu leiðara básúnudeildarinnar í Sinfóníuhljómsveit Íslands og kemur fram á mörgum upptökum með hljómsveitinni. Jón hefur leikið með fjölda hljómsveita meðal annars Frankfurt Radio Orchestra, Oslo Philharmonic, Danish National Symphony, Norwegian Radio Orchestra, Trondheim Symphony Orchestra, Bodø Sinfonietta, Oslo Sinfonietta og fleira. Hann hefur einnig leikið einleikshlutverk um víðan völl, þar á meðal með Sinfóníuhljómsveit Íslands eftir sigur íslensku keppninnar ,,Ungir einleikarar” árið 2020 og einnig James MacMillan básúnukonsert á Myrkum Músikkdögum 2026.Sumarið 2026 vann Jón fyrstu verðlaun í alþjóðlegu básúnu keppninni í Lieksa í Finnlandi: The 5th International Lieksa Brass Week Trombone Competition.

Jón Arnar hefur verið drífandi kyndilberi nýrrar tónlist og staðið fyrir pöntun fjölda verka fyrir básúnu. Hann hefur haldið tónleika með nútíma músik og frumflutt fjölda verka innan landsteinanna sem utan. Hann hefur sótt hátíðir og námskeið erlendis og borið heiður íslenskrar tónlistar, þar á meðal á Ung Nordisk musikk og Grafenegg Academy

Lára Bryndís Eggertsdóttir stundaði orgelnám á Íslandi hjá Herði Áskelssyni, í Svíþjóð hjá Hans-Ola Ericsson og í Danmörku hjá Ulrik Spang-Hanssen og Lars Colding Wolf, sem einnig var sembalkennari hennar. Hún lauk meistaragráðu í kirkjutónlist frá Tónlistarháskólanum í Árósum vorið 2014, en starfaði samhliða náminu og næstu árin sem organisti við Sønderbro kirkju í Horsens og semballeikari hjá BaroqueAros í Árósum. Lára Bryndís flutti árið 2018 aftur heim til Íslands og er nú organisti og kórstjóri við Grafarvogskirkju, en kennir jafnframt orgelleik við Tónskóla þjóðkirkjunnar og kemur fram sem orgel- og semballeikari við ýmis tækifæri. Lára hefur haldið fjölmarga einleikstónleika á orgel, bæði hérlendis og á hinum Norðurlöndunum, og leikið inn á ýmsar upptökur en þar má helst nefna að árið 2014 stóð hún fyrir tónlistarverkefninu „Ég heyrði þytinn frá vængjum þeirra“, þar sem sjö íslensk tónskáld sömdu orgelverk að beiðni Láru, og gaf út samnefndan geisladisk. Lára Bryndís hefur hlotið ýmsa styrki og viðurkenningar, m.a. frá Rótarý á Íslandi og Minningarsjóði Jean-Pierre Jacquillat.

Efnisskrá:

Duo Concertante - Gustav Holst

Blindsaumur - Þórður Hallgrímsson

Brenni þið vitar - Páll Ísólfsson (Úts.Lára Bryndís Eggertsdóttir)

Hugi Guðmundsson - Signing

Rennur upp um nótt - Sálmur (úts.Hróðmar Ingi Sigurbjörnsson)

Öll verkin eru fyrir básúnu og orgel

Miðasala fer fram í Hallgrímskirkju og á https://tix.is/venue/2069

Aðgangseyrir 3.200 kr.

HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN STAÐUR