Hádegistónleikar til styrktar Ljósinu - Bleikur október í Bústaðakirkju

Hádegistónleikar til styrktar Ljósinu - Bleikur október í Bústaðakirkju

Bústaðakirkja, Tunguvegur 25, 108 Reykjavík Kort

mið 7. okt 2026 12:05

Bústaðu viðburðinn!

Hádegistónleikar á miðvikudegi með Sigurði Flosasyni, Gunnari Hrafnssyni, Einari V. Scheving og Jónasi Þóri.

Bleikur október í Bústaðakirkju verður á sínum stað. Yfirskriftin þetta árið er Lífið er fegurð og gleði. 

Dagskráin samanstendur af hádegistónleikum í Bústaðakirkju alla miðvikudaga í október kl. 12:05. Ókeypis er inn á tónleikana en tónleikagestum gefst færi á að styðja Ljósið með fjárframlögum. Í kjölfar tónleikanna verður boðið upp á léttar veitingar í safnaðarheimili Bústaðakirkju, gegn vægu gjaldi.

Jónas Þórir organisti Bústaðakirkju hefur veg og vanda af dagskrá hádegistónleikanna, að venju. Með honum að þessu sinni verða Sóli Hólm, Sigurður Flosason, Gunnar Hrafnsson, Einar V. Scheving, Íris Björk Gunnarsdóttir, Herdís Anna Jónasdóttir, Matthildur Anna Gísladóttir og Örn Árnason.