HEIMA-SKAGI 2026

HEIMA-SKAGI 2026

Gamla SBK húsið, Hafnargata 12, 230 Keflavík Kort

lau 31. okt 2026 18:00

Bústaðu viðburðinn!

Þau sem koma fram á HEIMA-SKAGA hátíðinni í ár eru:

Sveitin

Sú Ellen

Krummi

Jónas Sig

Jaðrakan

Ísak Breki

Á Móti Sól

Ferlegheit

Soffía Björg

Marius Ziska

Blood Harmony

Kristmundur Axel

Teitur Magnússon

Dóra og Döðlurnar

Karolína Orradóttir

Rock Paper Sisters

MIÐAHAFAR FÁ AFHENT ARMBÖND og prentaða dagskrá í gamla Arnardal (Kirkjubraut 48) á hátíðardag frá 13.00 – 17.00

HEIMA-SKAGI er tónlistarhátíð sem haldin er í tengslum við menningarhátíð Skagamanna - Vökudaga sem standa frá 22. október til 1. nóvember í ár.

Á HEIMA-SKAGA hátíðinni sem fer fram laugardaginn 31. október koma fram 15 listamenn/hljómsveitir/atriði sem spila flest tvisvar sinnum flestir í 12 mismunandi húsum. Eitt kvöld, 29 tónleikar í það heila í 12 húsum.

HEIMA-SKAGI leggur áherslu á alls konar músík – Popp -rokk – rapp – jazz – soul – folk – heimstónlist - klassík - og í raun hvað sem er, ef það er áhugavert og skemmtilegt.

Stærsta breytingin frá því í fyrra er að upphaf og endir HEIMA-SKAGA mun fara fram í einu af húsum fyrirtækisins KAPP (Skaginn) sem er aðal-styrktaraðili hátíðarinnar. Í KAPP verður hátíðin sett með formlegum hætti og henni verður líka slitið þar með skemmtilegum lokatónleikum þegar dagskránni í HEIMA-húsunum er allri lokið. Í KAPP munu spila 5 hljómsveitir/atriði í það heila á HEIMA-SKAGA ár og í KAPP verður AÐAL-svið hátíðarinnar.

En það verður líka spilað í heimahúsum eins og undanfarin ár og á rakarastofu Hinna (sem er líkast til í minnsta húsi Akraness) eins og undanfarin ár – og í gamla ArnArdAl (Kirkjubraut 48) eins og í fyrra. Þar verða armböndin líka afhent á hátíðardag frá kl. 13.00-17.00 og þar verður ýmislegt skemmtilegt í gangi – matur, myndlist ofl.

HEIMA-SKAGI er einstök hátíð þar sem nándin við listafólkið er mjög mikil. Fyrsta HEIMA-SKAGA hátíðin var haldin 2019 með sex atriðum og það hefur alltaf selst upp.

Sveitin – sem er gamla Skólahljómsveit Akraness – 30 manna lúðrasveit undir stjórn Andrésar Helgasonar mun opna hátíðina kl. 18.00 í KAPP. Það er mögulegt að gestur eða tveir muni syngja með Sveitinni.

Dagskráin í HEIMA-húsunum hefst svo kl. 19.00 og stendur til 22.30.

Lokatónleikar HEIMA-SKAGA í ár eru með hljómsveitinni (leyndó ennþá) Þeir hefjast í KAPP stundvíslega kl. 23.00.

HEIMA-SKAGI er tónlistarhátíð með 15 hljómsveitum/atriðum sem stendur yfir í 6 klukkustundir.

Það er stutt á Akranes úr Reykjavík til dæmis og allir velkomnir.