Heimili Heimsmarkmiðanna: Landbúnaður og loftslagið
Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort
mið 9. des 2026 17:30
Bústaðu viðburðinn!Íslenskur landbúnaður fæðir þjóðina, heldur byggð í landinu og er órjúfanlegur þáttur menningu okkar og sjálfsmynd. Landbúnaður og landnotkun eru stórir þættir í losun gróðurhúsalofttegunda, og á tímum loftslagsbreytinga er spurt hvað eigi að gera í því.
Á þessum fundi Heimilis Heimsmarkmiðanna snúum við okkur að þrettánda heimsmarkmiðinu, aðgerðum í loftslagsmálum, og beinum sjónum að íslenskum landbúnaði. Hvaðan kemur losunin og hvað er raunhæft að gera til að draga úr henni? Hvað geta bændur gert, hvað þarf til að styðja þá og hvert er hlutverk stjórnvalda, matvælaframleiðenda og neytenda? Og hvernig vegum við loftslagsmarkmið á móti fæðuöryggi, afkomu bænda og lífi í sveitum landsins?
Sérfræðingateymið kemur úr ólíkum áttum og mun deila vitneskju og reynslu sinni.
Sérfræðingarnir sem mæta til okkar eru:
Sigurður Torfi Sigurðsson, ráðunautur á rekstrar- og umhverfissviði Ráðgjafarmiðstöðvar landbúnaðarins (RML). RML er meðal samstarfsaðila verkefnisins Loftslagsvænn landbúnaður.
Ragnheiður Björk Halldórsdóttir, iðnaðarverkfræðingur og sjálfbærniráðgjafi. Hún hefur meðal annars starfað hjá Landsvirkjun og sem ráðgjafi hjá McKinsey & Company, og setið í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur.
Ólafur Ögmundarson, deildarforseti Matvæla- og næringarfræðideildar Háskóla Íslands. Hann hefur rannsakað umhverfisáhrif matvælaframleiðslu með lífsferilsgreiningum.
Þröstur Helgason, ritstjóri Bændablaðsins, mun stýra fundinum.
Fundurinn fer fram í Hannesarholti miðvikudaginn 9. desember kl. 17:0. Allir eru velkomnir, aðgangur er ókeypis og fundurinn verður í beinu streymi.