höndin á lestarglugganum og andlitið í átt að sólinni // Þ. Muni Jakobsson

höndin á lestarglugganum og andlitið í átt að sólinni // Þ. Muni Jakobsson

Myndlistardeild Listaháskóla Íslands, Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík Kort

fös 2. okt 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

BA3 einkasýning í Huldulandi Opnun 1. október 17:00 – 19:00 Einnig opið 2. október 16:00-18:00 & 3. & 4. október kl. 14:00-17:00. Þ. Muni Jakobsson (f. 1998) notar hljóð, rými og hreyfingu til að skoða tíma, minningar og þrár. Hvernig mannfólk er bundið við tímann í gegnum hringrás endurtekninga, flöktandi á milli minninga fortíðarinnar og þrár framtíðarinnar. Hann vinnur með málm, timbur og tækni frá mismunandi tímaskeiðum, til að kalla fram líkamlega upplifun sem skarast á við form og gildi samtímans. Sýningin snýst hring eftir hring, skrásetur minningar og strokar þær svo út, því án tímans eru engar minningar, engar þrár, en án minninga er enginn tími, engin sár.

Sýningin er partur af einkasýningaröð BA nemenda á þriðja ári í myndlist sem fara fram á tímabilinu 17. september – 26. nóvember 2026. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur, Ólafar Nordal & Páls Hauks Björnssonar. Kennarar og leiðbeinendur eru Sabine Fischer, Una Björg Magnúsdóttir & Unnar Örn Jónasson Auðarsson.