Jazz í Djúpinu // Björg Blöndal & Þorkell Ragnar
Hornið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim 29. okt 2026 20:30
Fimmtudagskvöldið 29. október ætla Björg Blöndal og Þorkell Ragnar að stíga á stokk í Djúpinu og flytja efni af óútgefinni plötu sem þau tóku upp í sumar. Síðastliðið ár hafa þau verið að vinna að því að semja og útsetja efni fyrir ofannefnda plötu með það að markmiði að nálgast samspil gítars og söngs á óhefðbundnari hátt en hið týpíska “söng vs. undirleik”.
Á dagskránni verður blanda af frumsömdu efni og ábreiðum af gömlum íslenskum dægurlögum, í skemmtilegum útsetningum fyrir gítar, barítón-gítar, rödd, vocoder og aðra syntha. Tónlistinni má lýsa sem lágstemmdri og áheyrilegri, þar sem hinn eilífi skætingur milli þess “akústíska” og hins “elektróníska” verður í brennidepli. Svo er aldrei að vita nema það leynist nokkrar skemmtilegar rúsínur í pylsuendanum!
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.