Jazz í Djúpinu // GH Gipsy Trio
Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 20:30
Tríóið flytur djass með hljóðfæraskipan sem á rætur að rekja til tónlistar gítarleikarans Django Reinhardt . Efnisskráin er fjölbreytt blanda af gömlum og nýjum lögum úr ýmsum áttum og hefur tríóið þróað með sér persónulegan stíl þar sem gamalt og nýtt mætast.
Sveitin hefur hvarvetna hlotið frábærar viðtökur, hvort sem er á virtum alþjóðlegum vettvangi eins og á Djangohátíðinni í Bimhuis í Amsterdam eða á Django Dögum í Iðnó, þar sem leikur þeirra vakti mikla lukku ásamt einvalaliði innlendra og erlendra tónlistarmanna.
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.