Jazz í Djúpinu // petals, Ingibjörg Turchi & Sólrún Mjöll

Jazz í Djúpinu // petals, Ingibjörg Turchi & Sólrún Mjöll

Hornið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort

fim 8. okt 2026 20:30

Bústaðu viðburðinn!

petals, Ingibjörg Turchi og Sólrún Mjöll skipa tríó tónlistarkvenna sem kannar möguleika frídjass og frjálsrar spunatónlistar.

Þær hafa áður leikið saman sem hluti af Banana Dream Ensemble, meðal annars á tónleikum í Mengi og Iðnó, en koma nú saman í nánari og persónulegri hljómsveitarskipan. Þetta verða fyrstu tónleikar þeirra sem tríó, þar sem tónlistin verður spunnin af sjálfu sér í augnablikinu og fylgt hvert sem hún leiðir flytjendurna.

Við vonum að þið sláist í hópinn og leyfið ykkur að hrífast með af öllu því frelsi, leikgleði og þeirri fegurð sem þær leitast við að miðla í tónlist sinni.

petals – blásturshljóðfæri, píanó, fiðla

Sólrún Mjöll – trommur

Ingibjörg Turchi – rafbassi

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.