Jazz í Djúpinu // Sírós
Hornið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim 22. okt 2026 20:30
Trompetleikarinn, söngkonan og tónsmiðurinn Sigurrós Jóhannesdóttir (Sírós) heldur tónleika í Djúpinu þann 22. október í tilefni útgáfu sinnar fyrstu plötu, Reika. Tónlistin hennar er fjölbreytt og í kjarnann djass, ýmist með rokk og fusion ívafi. Lögin fjalla öll um einhverskonar ferðalag. Sum ferðalög eru í gegnum tilfinningalega óreiðu meðan önnur eru bókstaflegri, eins og ferðalagið í gegn um morgunumferðina. Platan verður flutt í heild sinni með vandlega mynduðum hópi frábærra hljóðfæraleikara:
Trompet, söngur: Sigurrós Jóhannesdóttir
Flauta, klarinett: Sólveig Morávek
Tenór saxófón: Kjartan Hugi
Bassaklarinett: Baldvin Ingvar Tryggvason
Píanó: Anna Gréta Sigurðardóttir
Gítar: Ásgeir Kjartansson
Bassi: Viktor Árni Veigarsson
Trommur: Alexandra Rós Norðkvist
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.