Jazz í Djúpinu // Tríó Jóels Pálssonar
Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort
fim 15. okt 2026 20:30
Tríó Jóels Pálssonar í Djúpinu
Saxófónleikarinn og tónskáldið Jóel Pálsson leikur í Djúpinu með tríói sínu sem skipa, auk Jóels, þeir Hilmar Jensson gítarleikari og Birgir Steinn Theodórsson kontrabassaleikari.
Jóel hefur um árabil verið áberandi á íslensku djasssenunni og hefur getið sér gott orð fyrir persónulegan og kraftmikinn leik, þar sem frjáls spuni, næmni og sterk tónlistarleg sýn fara saman. Hann hefur komið víða fram bæði hér heima og erlendis og gefið út fjölda verka undir eigin nafni.
Á efnisskránni er frumsamin tónlist þar sem mörk hins skrifaða og spuna renna saman í ólgandi óvissuferð. Tónlistin gefur flytjendunum rými til að bregðast hver við öðrum í augnablikinu, þar sem hljóð, þögn, orka og óvæntar vendingar verða hluti af tónsmíðinni sjálfri.
Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.