Jóga · Öndun · Djúpslökun með Gullu
Virkja, Bolholt 4, 105 Reykjavík Kort
mið 7. okt 2026 17:15
Jóga · Öndun · Djúpslökun alla miðvikudaga kl 17:15-18:15
Gefðu þér klukkutíma til að hægja á, hlusta inn á við og koma heim í líkamann.
Í tímunum hjá Gullu sameinum við mjúka hreyfingu, meðvitaða öndun og djúpslökun. Engin reynsla er nauðsynleg. Þú mætir einfaldlega eins og þú ert.
🌿 Miðvikudaga kl. 17:15
🌿 Föstudaga kl. 12:00
📍 Bolholt 4 · 4. hæð
Stakur tími · 3.500 kr.
10 tíma kort · 28.000 kr. · 20% afsláttur
20 tíma kort · 49.000 kr. · 30% afsláttur
🤍 Mættu þér eins og þú ert
Bókaðu þinn tíma á
www.hjartaheimar.is
Jóga hjá Hjartaheimum snýst um að koma heim í líkamann með mjúkri en markvissri hreyfingu, öndun og nærveru. Áherslan er ekki á að ná ákveðinni stöðu, heldur á að hlusta á líkamann og losa um óþarfa spennu.
Við vinnum meðal annars með jóga í anda Raja og Ashtanga jóga, þar sem öndunin er rauði þráðurinn í gegnum tímann. Við notum Ujjayi öndun í hreyfingum og gefum sérstakan gaum að því að mýkja kviðinn, fylla lungun, lengja hrygginn og leyfa mjöðmum og líkama að losna smám saman.
Öndunin fær sérstakt rými í tímunum. Við lærum að nota hana meðvitað til að skapa meiri nærveru og tengingu við líkamann.
Þessir tveir tímar í viku hverri verða fastur punktur sem þú getur alltaf treyst á. Þú ert velkomin hvort sem þetta er fyrsti tíminn þinn eða þú kemur aftur og aftur.
Kona í hugleiðslustellingu á jógadýnu í Hjartaheimum
Nánar um öndunartæknina í tímanum
Í lok tímans · Djúpslökun · Nidra
Tíminn endar alltaf í djúpri slökun (Yoga Nidra) þar sem róleg og markviss leiðsögn fylgir þér í gegn. Athyglinni er beint inn í líkamann, að öndun og innri upplifun, og líkami og hugur fá að sleppa smám saman inn í dýpri hvíld.
Þú þarft ekkert að gera eða kunna. Þú leggst einfaldlega niður, lokar augunum og fylgir leiðsögninni. Líkami og hugur fá að hægja á sér og sökkva smám saman inn í djúpa hvíld.
Hægðu á - Andaðu - Slepptu - Hvíldu