Jólabókaflóðið í Kringlunni

Jólabókaflóðið í Kringlunni

Borgarbókasafnið | Menningarhús Kringlunni, Listabraut 3, 103 Reykjavík Kort

lau 14. nóv 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Jólabókaflóðið er hafið. Við tökum forskot á dag íslenskrar tungu með þremur höfundum sem stungu sér til sunds í því.

Bókmenntarýnirinn Sunna Dís Másdóttir kemur í Kringluna til þess að ræða við Einar Lövdahl, Margréti Bjarnadóttur og Steinunni Sigurðardóttur sem eru öll með nýja bók í ár.

Aðskotahlutir er önnur skáldsaga Einars á eftir Gegnumtrekk en smásagnasafn hans Í miðju mannhafi bar sigur úr býtum í Nýjum röddum, handritasamkeppni Forlagsins árið 2021.

Varkár er fyrsta skáldsaga Margrétar Bjarnadóttur en hefur strax slegið í gegn. Hún hefur áður sent frá sér bækurnar Orðið á götunni og Líf mitt, til dæmis. Margrét starfar sem fjöllistakona og danshöfundur.

Steinunni Sigurðardóttur þarf vart að kynna en hún hefur til áratuga verið eitt helsta skáld landsins. Veisla þrjú er sjálfstætt framhald af Ból sem vann til íslensku bókmenntaverðlaunanna árið 2024 en Steinunn hefur áður hlotið þau fyrir Hjartastað.

Boðið verður upp á léttar veitingar til þess að ylja gestum í nóvemberkuldanum.

Öll eru hjartanlega velkomin.

Heimasíða viðburðar: https://borgarbokasafn.is/events/0dbcebf8-2c6f-4162-866f-359e8de2f633,20261114

Nánari upplýsingar veitir:

Guttormur Þorsteinsson, sérfræðingur

guttormur.thorsteinsson@reykjavik.is | s. 411 6204