Jóladagskrá

Jóladagskrá

Dillonshús Árbæjarsafni, Kistuhylur, 110 Reykjavík Kort

sun 13. des 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Bráðum koma blessuð jólin er yfirskrift jóladagskrár Árbæjarsafns sunnudagana 13. og 20. desember en þá daga gefst gestum tækifæri að njóta aðventunnar og upplifa jólin eins og þau voru í Reykjavík í þá gömlu góðu daga. 🎄

Jólaundirbúningur er í fullum gangi í bænum. Í Árbæ sker fólk út laufabrauð, kembir ull og spinnur garn. Í Hábæ bjóða húsbændur gestum að smakka íslenskt hangikjöt og í Nýlendu tálgar maður skemmtilegar fígúrur úr tré. Kæsta skatan er komin í pottinn í Efstabæ og í Miðhúsum eru prentuð falleg jólakort.

Í hesthúsinu í Garðastræti eru hjúin í óðaönn að steypa kerti úr tólgi. Jólahald heldra fólks við upphaf 20. aldar er sýnt í Suðurgötu 7 og í Krambúðinni er kramarhús, konfekt og ýmis jólavarningur til sölu.

Kaffiilmur berst frá Dillonshúsi en þar er upplagt að setjast niður fá sér tíu dropa og smá bakkelsi með.

Helstu dagskráliðir:

🎅14:00-16:00 Jólasveinar skemmta gestum á víð og dreif um safnsvæðið og taka þátt í söng og dansi.

⛪14:00 Guðsþjónusta í safnkirkjunni

🎄15:00 Sungið og dansað í kringum jólatréð á torgi safnsins

Frítt inn fyrir börn, öryrkja og menningarkortshafa. Aðrir greiða 2.550 kr.

Vinsamlegast athugið að dagskráin endar kl. 16 en safnið er opið til kl. 17.

Gagnlegar upplýsingar:

♿Aðgengi: Gangstígar á safnsvæðinu eru flestir malarstígar. Inn í flest húsin er gengið upp eitt þrep eða yfir þröskuld.

🦮Hjálparhundar eru velkomnir í safnið.

🚌 Strætisvagnar: Næsta stoppistöð heitir Árbæjarsafn (1 mín. gangur). Aðrar nálægar stoppistöðvar heita Laxakvísl og Fagribær (5-6 mín. gangur). Bílastæði fyrir hreyfihamlaða eru við inngang safnsins. Öll bílastæði eru ókeypis.