Jólatónleikar Múlans / Múlakvintettinn

Jólatónleikar Múlans / Múlakvintettinn

Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

mið 16. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Jazzklúbburinn Múlinn lýkur haustdadagskrá sinni með spennandi tónleikum miðvikudaginn 16. desember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur hljómsveit klúbbsins, Múlakvintettinn, sem hefur starfað um árabil fram og flytur nýjar útsetningar á sígildum jólalögum. Á efnisskránni eru þekkt og ástsæl jólalög sem flestir þekkja og hafa notið í gegnum tíðina. Hljómur liðinna ára fær hér nýtt líf í höndum hljómsveitarinnar, þar sem gömlu lögin öðlast ferskan blæ og nýja vídd. Tónlistin, útsett fyrir tvo saxófóna og rytmasveit, flæðir áfram af dillandi sveiflu og skapar hlýja og hátíðlega stemningu. Múlakvintettinn býður þannig upp á notalega jólatónleika þar sem sígildar jólaperlur og ferskar útsetningar mætast í lifandi og sveiflukenndum flutningi. Haukur Gröndal, saxófónn Ólafur Jónsson, saxófónn Ásgeir Ásgeirsson, gítar Þorgrímur Jónsson, bassi Erik Qvick, trommur

Haustdagskrá Múlans lýkur með þessum tónleikum. Múlinn snýr aftur með spennandi vordagskrá í lok janúar til maí 2027. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu